Hvað er jihad? Vonandi ekki komið hingað

Ajihad

Svar

Hugtakið jihad birtist oft í Kóraninum, sem er helgirit múslima. Orðið jihad merkir barátta eða átök. Á íslensku er það oft þýtt sem „heilagt stríð“ sem gefur satt að segja ekki alltaf rétta mynd af þessu fyrirbæri. Íslensku orðin „heilagt stríð“ eiga sér enga samsvörun í arabísku. Stríð er harb og muqaddas merkir helgi og þessi orð koma aldrei fyrir saman.

Hlutverk Kóransins og lagasetninga múslima var meðal annars að mynda nýjan flöt á samskiptum manna og kvenna og losa þau undan hefðum ættbálkasamfélagsins í Arabíu. Eitt af því sem einkenndi ættbálkana var svonefnd rassía sem var stjórnlaust stríð milli ættbálkanna. Af því orði er íslenska orðið rassía dregið, eins og þegar sagt er „lögreglan gerði rassíu”.

Íslam kom á reglu í samskiptum manna og jihad kom í stað rassíu. Jihad í Kóraninum hefur þar af leiðandi mjög jákvæða merkingu því meginmarkmið þess er að varðveita friðinn og spyrna gegn rassíu. Jihad felur þó í sér viðurkenningu á því að maðurinn hafi tilhneigingu til að syndga og virða ekki rétt náungans eða velferð samfélagsins almennt. Hugtakið jihad viðurkennir líka það eðli samfélaga að vera oft í stríði við hvort annað.

Í grófum dráttum skiptist jihad í tvennt: Stærra jihad (jihad al-akbar) og smærra jihad (jihad al-aksar). Hið stærra jihad er erfiðara og lýsir baráttunni sem við heyjum hvern einasta dag. Það er jihad innra með okkur sem merkir baráttu einstaklingsins við að standast freistingar djöfulsins.

Hið smærra jihad er hið ytra jihad. Bæði í Kóraninum og í Hadith, sem mynda grundvöllinn að lagakerfi múslima sem nefnist Sharía, eru til skýrar reglur um rétta hegðun í stríðsrekstri. Í reglunum endurspeglast áhyggjur af því að múslimar hegði sér með ofbeldisfullum hætti og drepi og ræni í nafni trúarinnar. Það myndi spilla friði samfélagsins og er því talið óæskilegt. Því eru settar skýrar reglur um það hvenær aðstæður eru réttar fyrir hið ytra jihad. Kóraninn fjallar um hið ytra jihad sem baráttu múslima gegn trúleysingjum. Ef samfélagi múslima stafar ógn af trúleysingjum er það skylda múslima (fard kifaya) að berjast gegn slíkri ógn. Múslimar eru hvattir til að berjast eins og er sagt í Kóraninum, „bi amwalihim wa anfusihim“ eða ‘með lífi sínu og eignum’.

Til að hvetja menn enn frekar til dáða eru lýsingar Kóransins mjög skýrar hvað varðar umbun hermanna falli þeir í þess konar stríði. Ef hermaðurinn er píslavottur (shahid) fær hann rakleiðis inngöngu í himnaríki en þarf ekki að bíða eftir endalokum tímans. Í þessum stríðsrekstri verða múslimar þó fyrst að gefa trúleysingjunum tækifæri til þess að gerast múslimar. Ef trúleysingjarnir gerast múslimar þá eru forsendur jihad ekki lengur fyrir hendi. Þá eru til margvíslegar reglur um það hvaða einstaklingar geta fengið undanþágu frá herþjónustu, um að ekki eigi að drepa konur og börn óvinarins, um meðferð stríðsfanga og farið er mjög nákvæmlega yfir það hvernig megi og eigi að skipta herfangi.

Kóraninn gefur ekki skýr svör um það hvort múslimar geti stundað jihad í sókn eða í vörn og stangast vers Kóransins á um þessi mál. Velflestir ritskýrendur bæði nú og fyrr telja að jihad sé einungis réttlætanlegt sem sjálfsvörn. Einungis megi beita því í sókn ef landsvæði múslima og trúariðkun þeirra sé í hættu. En margir telja líka að jihad ætti einnig að beita í sókn og að bardögum ættu ekki að linna fyrr en allur heimurinn tilheyrir múslimum og allir séu undir verndarvæng umma, sem er samfélag trúaðra. Í umma gera múslimar ráð fyrir að gyðingar og kristnir geta áfram stundað trú sína þó að þeir verði annars flokks þegnar. Þetta viðhorf er ekki einstakt fyrir íslam heldur hafa velflest trúarbrögð það að markmiði, meðal annars kristnin, „að gera allar þjóðir að lærisveinum”.

Hægt er að lesa meira um jihad á Vísindavefnum í grein eftir sama höfund sem heitir Af hverju hata þeir okkur? Jihad í nútímasögu íslam og Mið-Austurlanda. Þetta svar er byggt á greininni.

Höfundur

Magnús Þorkell Bernharðssonlektor í sögu Mið-Austurlanda við Williams College, Massachussets


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góð grunn kynning á Jihad í stuttri grein.

Það eru auðvitað áhöld um merkingu orðsins Jihad, því í vísindum þá merkir orðið  ,,útþensla"  eftir því sem Loftur Altice segir í einni af sínum merku greinum.

 Bestu kveðjur,

Skúli Skúlason (IP-tala skráð) 30.4.2008 kl. 20:47

2 Smámynd: Jóhann Helgason

Sæll Skúli  takk kærlega fyrir þetta gott vita Jihad, því í vísindum þá merkir orðið  ,,útþensla  mjög merkilegt, ég fór inn á siðuna þina hún er rosalega  góð mikil fróðleikur þar finna þar um íslam .  frábært að hafa hana .

Bestu kveðjur,

Jói

Jóhann Helgason, 30.4.2008 kl. 23:16

3 Smámynd: Bryndís Böðvarsdóttir

Merkilegt. Við þurfum að fræðast um Íslam til þess að skilja hvað það er sem vakir fyrir þeim. Nú skil ég að líklega eru það bara ofstækismenn sem vilja eyða kristnum.

Íslamstrúarmenn mega samkvæmt þessu verja landssvæði sitt, en hver á að ákveða það hvaða landssvæði er þeirra og hvað ekki, sbr. deilur Gyðinga og Palestínumanna. Ég held að það sem þessar þjóðir þurfa að heyra er friðarboðskapur og það hvernig hægt sé að deila eigum sínum með náunganum (landi sínu) og lifa í kærleika hver til annars.

Bryndís Böðvarsdóttir, 1.5.2008 kl. 11:51

4 Smámynd: Bryndís Böðvarsdóttir

Að mínu mati væri auðvitað ákjósanlegt að þeir tækju á móti friðarboðskap Krists, en Kóraninn viðurkennir Krist sem spámann, en ekki endilega sem son Guðs og frelsara mannanna.

Bryndís Böðvarsdóttir, 1.5.2008 kl. 11:52

5 Smámynd: Jóhann Helgason

Já öfga íslam stefna  er taka völdum hjá múslimum þetta Jihad , það má rekja það til ÍRAKs stríðsins held ég , en svo hefur maður heyrt að fólk  að margir múslímar eru að yfir gefa trúna íslam útaf þessari öfga stefnu innan íslams .'Eg samála þér Bryndis  væri auðvitað ákjósanlegt að þeir tækju á móti friðarboðskap Krists það væri æðislegt , við þurfum náttúrlega að biðja fyrir þeim .þau eru svo illa blekkt greyin.

Já  'eg er samála þér Bryndis  deilur Gyðinga og Palestínumanna. Ég held að það sem þessar þjóðir þurfa að heyra er friðarboðskapur og það hvernig hægt sé að deila eigum sínum með náunganum (landi sínu) og lifa í kærleika hver til annars.

Jóhann Helgason, 1.5.2008 kl. 13:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband