Heilög þrenning

 holyed-1

Heilög þrenning, Þrenningin eða Þrenningarkenningin er ein mikilvægasta hugmyndin í hinni kristnu trú samkvæmt flestum kirkjudeildum og felur í sér Föðurinn, Soninn og heilagan anda. Kjarni þessarar kenningar er að Guð er samfélag föður og sonar og heilags anda í einum guðdómi. Kenningin óx fram sem tilraun til að samræma og útskýra frásögur Gamla og Nýja testamentanna um Guð og skapa samræmda mynd af opinberunum Hans.

Þrátt fyrir mikilvægi kenningarinnar fyrir allar helstur kirkjudeildirnar hefur hún valdið miklum deilum guðfræðinga og á þátt í klofningi kirkjudeilda sérlega á fyrstu öldum kristinnar kirkju.

Saga

Þrenningarhugtakið sem slíkt er ekki að finna í Biblíunni, hvorki í Gamla eða Nýja testamentinu. Það var kirkjufaðirinn Tertullianus (um 160—225) frá Karþagó sem um ár 200 setti fram grundvallarsetningu þrenningarkenningarinnar: „Guð er einn að eðli og þrjár persónur“. Hugtakið Þrenningin var fyrst notað af Þeophílusi frá Antiokkíu um ár 180 [1] og varð afgerandi við framvöxt kaþólsku kirkjunnar og rétttrúnaðarkirkjunnar, til dæmis í deilunum við aríanista, nestoríana og það sem varð austrænu rétttrúnaðarkirkjurnar. Aríus hélt því fram að „Það var sá tími er sonurinn var ekki“:

Þess vegna eru þrjár verur (hyopstaser), Faðirinn, Sonurinn og Heilagur andi. Og Guð, sem er upphaf allra hluta, er sá eini án upphafs, en Sonurinn, sem fæddist utan tímans af Föðurnum var ekki áður en hann var fæddur og fékk einungis líf gegnum Föðurinn einan. (haft eftir Aríusi í gagnriti Epiphaniuar frá Salamis .

Í Aþanasíusarjátningunni (sem samin var um ár 500) sem sköpuð var gegn Aríusarsinnum segir hins vegar:

10 Faðirinn er eilífur, sonurinn er eilífur, heilagur andi er eilífur 11 og samt sem áður eru ekki þrír eilífir, heldur einn eilífur 12 eins og þeir eru ekki þrír óskapaðir og ekki þrír ómælanlegir, heldur einn óskapaður og einn ómælanlegur.

og síðan:

21 Sonurinn er ekki gerður og ekki skapaður, heldur fæddur af föðurnum einum. [3]

Þrenningarkenningin skapaðist undir miklum áhrifum frá nýplatonisma ekki síst hugmynda þeirra um heim frummyndanna og hinn skynjanlega heim sem fullkomlega aðskildir.

Þessar deilur urðu aðalmálefnin kirkjuþingsins í Níkeu 325 og Níkeujátningin frá 381 er sett fram einkum til undirstrika mikilvægi þrenningarkenningarinnar.

 Þrenningarkenningin í Biblíunni

jesugud-1

Hvorki hugtakið Heilög þrenning né önnur augljós hugtök sem styðja það er að finna í Biblíunni en guðfræðingar hafa þó fundið fleiri staði sem má nota til að rökstyðja kenninguna.

Í Gamla testamentinu er einkum 1. Mósebók 18 þar sem Guð sýnir sig í formi þriggja manna fyrir Abraham tekin sem vitni um kenninguna. Í Nýja testamentinu er mikilvægasta stuðninginn að finna í Matteusarguðspjallinu 28:19 en einnig í 2. Korintubréf 13:13 .

Guðdómurinn er einn

Trúin á þrenningarkenninguna er mikilvæg í kaþólskri trú, rétttrúnaðarkirkjunni og flestum söfnuðum mótmælenda. En samtímis er kenningin um að það sé aðeins til einn guð grundvöllur kristinnar trúar. Þessi kenning tengir kristni hinum Abrahamísku trúarbrögðunum, Gyðingdómi og Íslam, eða eins og segir í Jesaja 44:6 „enginn Guð er til nema ég“. Þrenningarkenningin veldur því hins vegar að bæði Gyðingdómur og Íslam álýta kristna vera fjölgyðistrúar eða alla vega jaðra við það

Söfnuðir sem afneita þrenningarkenningunni

Ýmsar kirkjudeildir hafa afneitað þrenningarkenningunni eða dregið hana mjög í efa. Ástæðurnar fyrir því eru margvíslegar og má nefna að hún fylgi ekki eingyðiskenningu Gamla testamentistins og Gyðingdóms, að hún sé einungis tilbúningur kirkjufeðranna og ekki síst að framsetningin á þrenningarkenningunni byggist að miklu leyti á orðaforða sem ekki er að finna í Biblíunni.

Ýmsar kirkjudeildir mótmælenda afneita þrenningarkenningunni. Þekktust er kirkjudeild únitara sem leggja áherslu á einingu Guðs og andmæla guðdómi Jesú Krists og heilags anda og þar með heilagri þrenningu. Einnig má nefna vísindakirkjuna (Christian Science). Kirkjudeildirnar Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu og Vottar Jehóva, sem báðar telja sig kristnar þó aðrar kirkjur ) telji svo ekki vera, afneita báðar þrenningarkenningunni þó af mismunandi ástæðum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynjólfur Þorvarðsson

Takk fyrir fróðlegan pistil. Varðandi þrenninguna, ég er með smá efni um Ósíris á síðunni hjá mér www.binntho.is og þar er ég með kafla frá egyptólóginum Mojsov um Ósíris/Ísis/Hórus sem þrenningu, mjög hliðstætt hinni kristnu hugmynd, sem hafi þróast frá því í lok bronsaldar, uþb. 1300-1400 f.o.t.

Brynjólfur Þorvarðsson, 10.4.2008 kl. 21:33

2 Smámynd: Linda

Viðveru og lestrakvitt, á eftir að skoða öll myndböndin sem þú hefur sett inn, mun gera það fyrr en síðar. Hafðu það sem best elsku vinur.

knús

Linda, 11.4.2008 kl. 17:16

3 Smámynd: Jóhann Helgason

´Sæll Brynjólfur þetta er mjög áhugavert efni Ósíris á síðunni hjá þér Mojsov um Ósíris/Ísis/Hórus sem þrenningu, mjög hliðstætt hinni kristnu hugmynd frábært ég fer nefnilega í trúbragðasöguna bráðum  ég get nýtt mér þessar góðu upplýsingar  takk kærlega fyrir þetta.

Jóhann Helgason, 11.4.2008 kl. 18:48

4 Smámynd: Jóhann Helgason

Hæ Linda takk fyrir innlitið  knús yfir til þín .

Jóhann Helgason, 11.4.2008 kl. 21:38

5 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Jói minn.

Takk fyrir fróðlegan pistill. Þegar Jesús var upprisinn var okkur mannfólkinu sendur huggari, andinn heilagi.

"En hjálparinn, andinn heilagi, sem faðirinn mun senda í mínu nafni, mun kenna yður allt og minna yður á allt það, sem ég hef sagt yður." Jóh. 14: 26.

Vona að þú hafir spurt um enska heitið? Tala undir rós núna.

Drottinn blessi þig

Kær kveðja/Rósa.

Rósa Aðalsteinsdóttir, 12.4.2008 kl. 10:23

6 identicon

Guð blessi þig og umvefji fyrir skrif þín!!

Ása (IP-tala skráð) 13.4.2008 kl. 18:44

7 Smámynd: Jóhann Helgason

'Eg vil þakka ykkur báðum  kærlega fyrir " Rósa og 'Asa Gréta  

Guð blessi ykkur Kær kveðja/ Jói

Jóhann Helgason, 14.4.2008 kl. 20:53

8 Smámynd: Sunna Dóra Möller

Sæll Jóhann, vildi bara kasta á þig kveðju og ég sé að þú ert á kafi í spennandi efni. Gangi þér sem allra best !

Sunna Dóra Möller, 22.4.2008 kl. 16:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband