Fimmtudagur, 13. desember 2007
Fertugasti og sjötti sálmur er snilld!
46 Sálmur
- 2 Guð er oss hæli og styrkur,
- örugg hjálp í nauðum.
- 3 Fyrir því hræðumst vér eigi, þótt jörðin haggist
- og fjöllin bifist og steypist í skaut sjávarins.
- 4 Látum vötnin gnýja og freyða,
- látum fjöllin gnötra fyrir æðigangi hafsins.
- 5 Elfar-kvíslir gleðja Guðs borg,
- heilagan bústað Hins hæsta.
- 6 Guð býr í henni, eigi mun hún bifast,
- Guð hjálpar henni, þegar birtir af degi.
- 7Þjóðir gnúðu, ríki riðuðu,
- raust hans þrumaði, jörðin nötraði.
- 8 Drottinn hersveitanna er með oss,
- Jakobs Guð vort vígi.
- 9 Komið, skoðið dáðir Drottins,
- hversu hann framkvæmir furðuverk á jörðu.
- 10 Hann stöðvar styrjaldir til endimarka jarðar,
- brýtur bogann, slær af oddinn,
- brennir skjöldu í eldi.
- 11 "Verið kyrrir og viðurkennið, að ég er Guð,
- hátt upphafinn meðal þjóðanna, hátt upphafinn á jörðu."
- 12 Drottinn hersveitanna er með oss,
- Jakobs Guð vort vígi.
Trúmál og siðferði | Breytt 30.12.2007 kl. 14:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)