Sunnudagur, 27. apríl 2008
Tjaldbúðin merkilega fræðandi efni """
Þriðjudagur, 22. apríl 2008
Bók Enoks ein sú merkilegasta
Bók Enoks ein sú merkilegasta af pseudepigraphical bóknum ,
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 22:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 22. apríl 2008
Öll Myndböndin mín duttu út skrýtin tilviljun




Trúmál og siðferði | Breytt 23.4.2008 kl. 18:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mánudagur, 21. apríl 2008
Obsession: Radical Islam's War Against the West (1 of 10)
Þessar færslu hérna er úr heimildarmyndinni
http://www.youtube.com/watch?v=gMLJJEDDDGc&feature=related
Trúmál og siðferði | Breytt 28.4.2008 kl. 13:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 21. apríl 2008
Allt um 'Islam er aftur komið inn á síðuna mína
LENGI LIFI MÁLFRELSI, LENGI LIFI LÝÐRÆÐI!!!
http://www.youtube.com/watch?v=Sm-GBMUqRU8
http://www.youtube.com/watch?v=kBe9XXTMdoA RobertSpencerdiscusses the truth ofislamand clearly demonstrates the great falsehood thatislamis a "religion of peace."...islamjihad tourture war politics |
Islam: What the West Needs to Know - youtube """"""""""""""""
LENGI LIFI MÁLFRELSI, LENGI LIFI LÝÐRÆÐI 'A 'ISLANDI OG 'A VESTURLÖNDUM"""""""""""""""""
Trúmál og siðferði | Breytt 23.4.2008 kl. 18:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Miðvikudagur, 16. apríl 2008
Islam - Salman Rushdie
Islam: What the West Needs to Know (2007)
Ég legg til að þið horfið á þessa mynd, þetta er svo miklu hættulegra dæmi en maður hélt að væri eða gerði sér grein fyrir.Ég tók færsluna út um Íslam og ákvað að setja hanna aftur inn þessi mynd er ísköld staðreynd um íslam sem við viljum horfa fram hjá hér á vesturlöndum og hugsum þetta getur ekki verið svona slæmt , en það er mikil afneitun
Ég legg til að þið horfið á þessa mynd, Vesturlanda málfrelsi okkar """""Maðurinn víkur, málfrelsið víkur, frelsið víkur - öfga trúarbrögðin ríkja, þessi mynd ætti vera skylda í skólum
Hún er til laugarnes video """"""
No Gays In Iran Says Ahmadinejad - VideoDart.com
Palestinians Muslim Arabs Celebrate 9-11-2001
Af hverju var rithöfundurinn Salman Rushdie dæmdur til dauða?
Árið 1989 dæmdi Ruhollah Khomeini, æðsti klerkur byltingarstjórnarinnar í Íran, rithöfundinn Salman Rushdie (f. 1947) til dauða fyrir guðlast. Að mati Khomeinis fól bókin Söngvar Satanseftir Rushdie í sér siðlausa og móðgandi umfjöllun um Múhameð spámannog eiginkonur hans. Jafnframt taldi Khomeini að bókin rangtúlkaði og afbakaði boðskap Kóransins. Hæfileg refsing fyrir slíkt guðlast væri dauðadómur.
Til að öðlast skilning á djúpstæðri reiði margra múslíma og því fjaðrafoki sem bókin olli þarf að hafa nokkur atriði í huga og verða tvö þeirra tíunduð hér.
Í skrifum sínum blandar Rushdie gjarnan töfraraunsæi saman við sagnfræði og guðfræði. Í Söngvum Satans verður Múhameð spámaður á vegi söguhetjanna (sem eru samtímamenn okkar daga) og er honum lýst sem breyskum manni. Atburðum frá tímum spámannsins sem greint er frá í Kóraninum er jafnframt fléttað saman við atburðarásina. Í íslam er hvorki hefð fyrir því að skrifað sé um líf spámannsins með þessum hætti né að atburðir úr Kóraninum séu settir í súrrealískan búning. Margir litu því á efni bókarinnar sem alvarlegt guðlast; að minnsta kosti var inntak hennar talið í hæsta máta óviðeigandi.
bókinni var einnig ýjað að því að vers í Kóraninum væru frá djöflinumkomin, líkt og heiti bókarinnar gefur til kynna. Rushdie leikur sér að versinu um gyðjurnar Lat, Manat og Uzza sem talið er hafa verið hluti af Kóraninumen er sagt hafa verið fjarlægt þegar upp komst að það væri frá djöflinum komið. Gefið er í skyn að slík djöflavers séu ef til vill fleiri fyrst að fyrrnefnt vers slæddist með á sínum tíma. Annað sem þótti ekki síður alvarlegt er frásögn af sögupersónunni Mahound (sem þýðir djöfullinn) sem fékk vitranir líkt og spámaðurinn sjálfur.
Harðar deilur sköpuðust í heimi múslíma um lögmæti og réttmæti dauðadómsins. Dómurinn var gefinn út með svokölluðu fatwa, lögformlegum úrskurði sem sérfræðingum í íslömskum lögum (sharia) er einum heimilt að veita að ströngum skilyrðum uppfylltum. Samkvæmt mörgum voru þessi skilyrði ekki fyrir hendi í þessu tilfelli. Við jafn alvarlegum glæpum og guðlasti er sönnunarbyrðin jafnframt afar mikil. Til að mynda þarf hinn ákærði að mæta fyrir rétti og játa brot sitt þrisvar sinnum. Rushdie játaði aldrei brot sitt, hvorki í réttarsal né annars staðar. Því töldu margir að hæpið væri að úrskurðurinn stæðist.
Tilgangur dauðadómsins samkvæmt Khomeini var að verja heiður íslam og treysta bönd múslíma um allan heim. Fræðimenn hafa í seinni tíð dregið opinberar ástæður dauðadómsins í efa og haldið fram að um pólitíska refskák hafi frekar verið að ræða. Khomeini og klerkastjórnin hafi þurft að bægja athygli heimamanna frá því hörmulega ástandi sem átta ára blóðugt stríð við Íraka hafði leitt af sér. Það hefði góð áhrif á þjóðarsálina á þessum erfiðu tímum að þjóðarleiðtoginn gengi fram sem verndari íslam á þennan afdrifaríkan hátt. Vonast var til að það framlengdi anda og stemningu byltingarinnar frá árinu 1979.
Að lokum skal geta þess að dauðadómnum hefur ekki verið framfylgt og Salman Rushdie er enn á lífi þegar þetta er skrifað.
Frekara lesefni og myndir
- Staða fatwa-samþykktarinnar í islam. Kirkjuvefbók Ragnars.
- Salman Rushdie (1947- ). Dr. Fidel Fajardo-Acosta's World Literature Website.
- Fyrri mynd: Image:Salman Rushdie by Kubik 03.JPG. Wikimedia Commons. Höfundur myndar er Mariusz Kubik.
- Seinni mynd: Image:Salman Rushdie by Kubik 04.JPG. Wikimedia Commons. Höfundur myndar er Mariusz Kubik.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur8.11.2006
Flokkur:
Hugvísindi> Trúarbrögð
Efnisorð
Salman Rushdie rithöfundar Ruhollah Khomeini Múhameð spámaður guðlast trú íslam múslímar Kóraninn bækur Söngvar Satans Íran mannfræði bókmenntir og listir
Tilvísun
Guðrún Margrét Guðmundsdóttir. Af hverju var rithöfundurinn Salman Rushdie dæmdur til dauða?. Vísindavefurinn8.11.2006. http://visindavefur.is/?id=6366. (Skoðað 16.4.2008).
Höfundur
Guðrún Margrét Guðmundsdóttirmannfræðingur
Ath! Það er mikil munur öfga múslimum og venjulegum múslimum!
The Truth About Muhammad: Quran is a Fraud
Trúmál og siðferði | Breytt 21.4.2008 kl. 17:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
Miðvikudagur, 16. apríl 2008
það er alltaf MJÖG stutt í fordóma gagnvart gyðingum
Vaxandi Gyðinga hatur veldur mér miklum áhyggum Fordómar, Rasismi,sem fólk réttlætir fyrir sjálfum sér að kynþátta hatur sé í lagi.
Gyðingar eru fyrst og fremst fólk!!!! sem er ekki öðruvísi en við að utanskykdum


Þegar stríðið var byrjað þótti Þjóðverjum ekki óhætt lað láta Gyðinga ganga lausa sem hugsanlega njósnara og skemmdaverkamenn á bak við víglínu og hófust þá hinir þekktu nauðungarflutningar þeirra í vinnubúðir og útrýmingarbúðir þar sem kvalasjúkir menn murkuðu úr þeim lífið með líffræðitilraunum og gasklefum.



- Andúð og fordómar annara þjóða gagnvart Gyðingum, var þegar til staðar á tíð Rómverja og gerði aftur vart við sig í Evrópu á miðöldum.
- á tímum krossferðanna á 17. öld dró úr gyðingahatri í V-Evr. En það var áfram við lýð í A-Evr. Og leiddu þar stundum til mikilla ofsókna einkum runnið af trúarlegum og efnahagslegum rótum.
- Er leið á öldina tók það á sig svip kynþáttahaturs og varð svæsnast í Þýskalandi eftir fyrri heimstyrjöldina.
- Í valdatíð Þýskra nasista kom til mestu gyðingaofsókna sögunnar, 5-6 miljónir Gyðinga voru myrtir.
- Eftir seinni heimstyrjöldina hefur gætt verulegs gyðingahaturs í Slóvétríkjunum og Póllandi og þess verður einnig vart í Frakklandi.
löndum múslima hefur gyðingahatur verið land lægt frá fornu fari og hafa illdeilur Gyðinga og Araba í Palestínu kynt enn frekar undir því.
En hvað hafði Hitler á móti gyðingum??v allir voru á móti gyðingum v eftir heimstyrjöldina fyrri varð mikil verðbólga í Þýskalandi og margir fóru á hausinn v gyðingar græddu á því af því að því að þá gátu þeir keypt upp eignir annara fyrir lítinn pening (margir gyðingar áttu þá penging) og það vakti mikla andúð í garð gyðinga.
Var Hitler haldinn presónulegu hatri í garð Gyðinga?? sögusagnir segja að eftir fyrri heimstyjöldina veiktist móðir Hitlers mikið og lifði ekki af. læknirinn sem vitjaði hennar var gyðingur og kenndi Hitler honum um dauða móður sinnar og fór síðan að dæma alla gyðinga vegna eins.
Gyðinga reglugerðir á tímum nasista- dæmi þeim var skylt að bera gula gyðingastjörnu urðu að skila inn reiðhólum var bannað að nota strætisvagna var bannað að aka bílum urða að gera heimilis innkaupin á milli kl 15:00-17:00 síðdegis máttu aðeins fara á hárgreiðslu og snyrtistofur sem voru í eigu gyðinga var bannað að vera á ferli úti frá kl 20:00-06:00
Gyðinga reglugerðir á tímum nasista- dæmi þeim var bannað að sækja leikhús, bíó og hvers konar skemmtannir þeim var bannað að nota tennis, fótbolta, körfuboltavelli sem og aðra íþróttavelli þeim var bannað að stunda íþróttir á almannafæri þeim var bannað að sitja í sínum eigin görðun eða görum vina sinna eftir kl 20:00 á kvöldin þeim var bannað að heimsæjka kristna vina sína inn á heimili þeirra gyðingar urða að sækja séstakan gyðingaskóla.
Heimildaskrá Íslenska Alfræðiorðabókin Heims söguatals Íslenskur söguatlas 3 Seinni heimstyrjöldin eftir Ronald Heiferman Heimasíðu Auchwitz Merkir MennHöf: Kristín Lilja og María
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 19:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 15. apríl 2008
Um gyðingdóm og hátíðir Gyðinga
Sh'ma Yisrael Adonaj Elohenú Adonaj Echad
Heyr, Ísrael, Drottinn, vor Guð, er einn Drottinn!
(5. Móseb. 6:4)
Samkvæmt trú Gyðinga, á líf mannanna að endurspegla þá staðreynd, að Guð er einn og enginn er Guð nema Hann. Allt lífið á að helgast. Þar er engin aðgreining, engin skipting í helguð svið og óhelg. Heimilið er helgidómur Guðs, borðið altari og mannleg samskipti eiga að bera réttlætinu vitni. Guðrækinn Gyðingur gengur sín daglegu spor með þakkargjörð. Hann blessar mat sinn og drykk, engu síður en helgidagsljósin og ný klæði. Þess vegna er Torah, lögmálið, sem er skráð í fimm bókum Móse, bæði kenning, lög og helgireglur. Þar eru tíu boðorð Guðs, en auk þess nákvæmar reglur um fæðu, siðferðismál, ölmusugjafir, bætur fyrir gerðan skaða og fjölmargt fleira.
Maðurinn er skapaður í Guðs mynd og hefur frjálsræði til að gera hið góða, Guðs vilja, eða snúa baki við því, falla frá Guði og syndga. Gyðingar neita meðfæddum syndugleik, en þeir viðurkenna meðfædda hneigð til ills. Gyðingar hafna kenningum kristindóms um frelsi frá syndum og afneita einnig eilífri glötun og Helvíti.
Ef maðurinn elskar Guð og reynir að keppa í átt til hans, verður hann líka að elska það sem Guð hefur skapað, fyrst og fremst aðra menn. Kærleikur Guðs og lögmálið eru eitt. Gyðingar telja að framundan sé koma Messíasar og ríki hans, er þjóðirnar munu smíða plógjárn úr sverðum sínum. Gyðingar trúa á ódauðleik sálarinnar og réttvíst endurgjald í öðrum heimi.
Þegar Guð gerði Ísrael að sinni útvöldu þjóð, lagði hann skyldur á herðar henni. Hann gerði þjóðina að þjóni sínum, er kunngjöra skyldi öðrum þjóðum orð hans. Margir Gyðingar og kristnir menn líta svo á, að það sé köllun gyðingdómsins allt til endaloka sögunnar að bera þjóðunum vitni um drottinvald Guðs yfir veröldinni.
Við eyðingu Jerúsalem 70 e.Kr., var musterið eyðilagt og fórnir samkvæmt lögmálinu lögðust af og Gyðingaþjóðin dreifðist vítt og breitt um veröldina. Lögmálið Torah, hélt áfram að vera þungamiðjan, en lögvitringarnir, rabbínar komu í stað presta og spámanna. Öldum saman höfðu menn skýrt fyrirmælin í bókum Móse, aukið þau og samræmt nýjum aðstæðum. Þannig varð erfikenningin Talmúd til, tólf þykk bindi. Talmúd verður helst líkt við trúarlegar alfræðibækur. Þar eru teknar fyrir og ræddar allar meiriháttar spurningar er varða líf Gyðinga. Þar eru lögmálsútskýringar, trúarlærdómar, textatúlkun, prédikanir, sögulegur fróðleikur og smásögur, hvað innan um annað. Menn reyndu að finna út frá orðum Gamla testamentisins nákvæmar reglur, boð og bönn, um öll tilfelli lífsins, raunveruleg og hugsanleg. Strangtrúaðir Gyðingar reyna að halda allar 613 reglur lögmálsins (248 boð og 365 bönn). Gyðingar fylgja fjölmörgum reglum varðandi fæðu og matargerð. Þessar reglur nefnast einu nafni kashrut. Bannað er að leggja sér óhrein dýr til munns, svo sem svín, humar og rækjur. Dýrum þarf að slátra eftir réttum reglum, þannig að sem mest af blóðinu fari úr skrokknum. Einnig er bannað að borða sinar spendýra, er það byggt á frásögunni um glímu Jakobs. Einnig er bannað að neyta blóðs, því að sálin býr í blóðinu. Ekki má blanda saman kjötmeti og mjólkurmat, því í 5. Mósebók segir: Þú skalt ekki sjóða kið í mjólk móður sinnar. Matur sem matreiddur er eftir settum reglum, er kallaður kosher. Öll sveinbörn þarf að umskera á áttunda degi. Umskurnin er tákn þess að einstaklingurinn sé undir sáttmálanum sem Guð gerði við Abraham. Allir sem eiga Gyðing að móður, teljast til Gyðingaþjóðarinnar. Gyðingar líta á allar aðrar þjóðir, sem heiðingja. Hvíldardagurinn (sabbatsdagurinn) er hátíð fjölskyldunnar.
Hvíldardagurinn hefst við sólarlag á föstudegi og lýkur við sólarlag á laugardegi. Strangtrúaðir Gyðingar forðast hvers kyns verk á sabbatsdegi. Þeir ferðast ekki, nota ekki síma, skrifa ekki, snerta ekki peninga, kveikja ekki ljós og láta ekki taka af sér myndir. Tuttugu mínútum áður en sabbatshelgin hefst, tendrar húsfreyjan sabbatsljósin. Síðan blessar heimilisfaðirinn vínið og sneiðir sabbatsbrauðið. Eftir það er borðaður hátíðarmatur. Á laugardögum fer fram guðþjónusta í samkunduhúsum Gyðinga. Guðþjónusta Gyðinga er tiltölulega fábrotin. Samkunduhúsin hafa engar myndir. Það þarf að lágmarki tíu karlmenn, til að hægt sé að hafa guðþjónustu. Guðþjónustan samanstendur af bænum, sálmasöng og upplestri úr lögmálinu. Rabbíninn í viðkomandi synagógu, sér um að prédika. Rabbíninn sér einnig um giftingar og jarðarfarir. Þótt lögmálið banni ekki fjölkvæni, hefur það ekki tíðkast meðal Gyðinga sl. 1000 ár.
Að fornri venju, eru sveinar blessaðir í samkunduhúsinu á næsta sabbatsdegi eftir 13. afmælisdag. Þá hafa þeir áður fengið uppfræðslu í lögmálinu og er falið að lesa upp úr lögmálinu við guðþjónustuna viðkomandi sabbatsdag. Þá verður sveinninn Bar Mitzvah, sonur lögmálsins.
Helsta hátíð Gyðinga er Páskar (Pesach), þegar Gyðingar minnast þess að Guð leiddi þá út úr Egyptalandi. Kvöldið fyrir Páskadag, er páskamáltíðin (Seder). Það er hátíðarmáltíð, þar sem fylgt er gömlum hefðum. Sálmar og textar úr 2. Mósebók 12-15 eru lesnir til skiptis, meðan máltíðin stendur yfir. Við máltíðina er brotið brauð, etið af páskalambinu og drukknir fjórir bikarar af víni samkvæmt hefðinni. Páskahátíðin stendur í sjö daga og er stundum nefnd hátíð ósýrðu brauðanna, því þá er aðeins notað brauð (Matzot) sem ekkert ger er í. Hvítasunna (Shavuot) er haldin hátíðleg 50 dögum eftir páska, en hún er upphaflega hátíð frumuppskerunnar (frumgróðans). Síðar var farið að minnast þess, þegar Guð gaf ísraelslýð boðorðin tíu í eyðimörkinni.
Laufskálahátíðin (Sukkot) er þakkar- og uppskeruhátíð, vegna uppskerunnar á haustin. Hún er einnig haldin hátíðleg til að minnast þess, hvernig Guð hjálpaði þjóðinni í eyðimörkinni, þegar fólkið hafðist við í laufskálum. Tákn þessarar hátíðar eru fimm: Pálminn, sítrónan, myrtan og pílviðurinn, sem eru borin í helgigöngum samkunduhúsanna og Súkkah, laufskálinn þar sem siður er að sofa og neyta máltíða vikuna sem hátíðin stendur yfir. Þak skálans er gert úr pálmagreinum og minnir í senn á híbýlin sem notuð eru á uppskerutímanum og híbýlin sem notuð voru á ferðalaginu frá Egyptalandi. Hálfum mánuði á undan laufskálahátíðinni er nýársdagur Gyðinga (Rosh Hashanah). Þá er nýju ári fagnað. Níu dögum eftir nýársdag, er friðþægingardagurinn mikli (Yom Kippur). Friðþægingardagurinn er almennur iðrunardagur. Þá fasta flestir Gyðingar og biðja í sólarhring og sumir eyða deginum í synagógu.
Púrímhátíðin (purom=hlutkesti) er haldin í febrúar-mars. Þetta er einn mesti gleðidagur ársins, en þá er minnst Esterar, sem sagt er frá í Esterarbók og varð drottning Ahasverusar(Xerxesar) Persakonungs. Henni tókst að koma í veg fyrir að Gyðingar yrðu afmáðir úr ríki Persakonungs. Á þessari hátíð eru haldnir grímudansleikir og farnar skrúðgöngur.
Musterisvígsluhátíðin (Hanukkah, ljósahátíðin) er haldin átta daga í desember. Á vígsluhátíðinni er minnst hreinsunar og endurreisnar musterisins árið 164 f.Kr., eftir að það hafði verið saurgað af Sýrlandskonungi í styrjöld. Sagan segir að kraftaverk hafi átt sér stað við endurvígsluna. Þegar musterið hafði verið hreinsað, fannst ekki nægileg ólífuolía til að tendra ljós á hinni stóru sjö-arma ljósastiku sem var í musterinu. Það var aðeins til olía fyrir eins dags notkun. Þá gerðist kraftaverk. Olían dugði í átta daga, jafn marga daga og það tók að útvega meiri olíu. Á hverju kvöldi er kveikt á einu kerti, þar til öll átta kertin, sem eru á sérstakri átta-arma ljósastiku hafa verið kveikt. Á þessum ljósastikum er einn viðbótararmur, sem kallast shamash (þjónninn) og er ljósið frá honum notað til að tendra hina armana.
Gyðingar skiptast í marga flokka, eftir því hversu hátíðlega þeir taka boð og bönn lögmálsins. Stærsti hópurinn er frjálslyndir Gyðingar, sem rækja trú sína að takmörkuðu leyti en fylgja ýmsum þjóðlegum hefðum. Heittrúaðir Gyðingar skiptast í nokkra flokka, m.a. strangtrúaða (Orthodox) og afar-strangtrúaða (Ultra-Orthodox).
Úr ritinu Stutt ágrip af kristnisögu.
Höf. Eiríkur Magnússon 1999
Þriðjudagur, 15. apríl 2008
• Talmud
Mig Langar til kynna fyrir ykkur Talmud helgi bók Gyðinga sem ég á sjálfur báðar Jerúsalem talmud og Babylon Talmud og Everyman ´s Talmud sem er eins og lifandi orð hjá okkur svona fyrir unga fólkið, 'eg mæli henni fyrir alla þá sem elska visku . Hún er frábær.
Talmud og Lögmálið
Tanakh: Hið ritaða lögmál GT
Talmud: Munnlegt lögmál
Skiptist í Mishna og Gemara var til fyrst
Sínaí hét fjallið þar sem Móse tók við lögmálinu frá YHWH og um leið munnlega lögmálinu
Orðið Talmúðþýðir að læra á hebresku en vísar yfirleitt til safnrits margra bóka með lögum og margvíslegum túlkunum og útskýringum á ýmsum laga- og ritningargreinum. Næst á eftir Biblíunni, sem hjá gyðingum tekur aðeins til Gamla testamentisins, er Talmúð mikilvægasta rit gyðingdóms. Þetta mikla safnrit inniheldur fornan lærdóm sem talinn er heilagur og varðveitir ýmsar reglur og lög gyðinga. Til eru tvær mismunandi gerðir ritsins, ein frá Babýloníu í núverandi Írak og ein frá Palestínu. Þær eru að mörgu leyti eins, þó sú babýlonska sé umfangsmeiri og því meira notuð. Það er nokkuð óvíst og umdeilt hvenær það var sem lærdómurinn og lögin voru sameinuð í Talmúð, og hverjir gerðu það. Þó er víst að það tók marga mannsaldra að safna og skipuleggja þetta umfangsmikla efni og í aðalatriðum var það gert af rabbínum og svokölluðum amoraim, sem eru ritskýrendur eða fræðimenn.
TværTalmud bæði Jerúsalem og Babylon
Gemaraer arameískt og er notað um lögskýringar við Mishna sem urðu til eftir að hún öðlaðist fast form. Upphaflega voru það þessar skýringar sem nefndar voru 'Talmúð', en þegar textinn var prentaður í Basel milli 1578 og 1581, ákváðu ritskoðendur kirkjunnar að þær skyldu kallast 'Gemara'. Síðan þá hefur Talmúð oftast vísað til verksins alls.
Talmúðinum frá Babýloníu var lokið um sjöttu öld eftir Krist. Ritsafnið er bæði á hebresku, upprunalegu máli gyðinga og síðar helgimáli, og arameísku sem var samskiptamál víða í Mið-Austurlöndum í fornöld og móðurmál flestra gyðinga frá og með sjöttu öld fyrir Krist.
Mishnah varð síðan grundvöllur enn frekari rökræðna í gyðingasamfélögum og var þessum rökræðum síðar safnað í Talmúd Jerúsalemborgar (um 400 e.Kr.)
Talmud: Munnlegt lögmál. Skiptist í Mishna og Gemara.tvær talmud eru notaðar Talmud til bæði í Jerúsalem og Babylon
Þetta munnlega lögmál, eða hin munnlega geymd, var rituð niður í lagasafninu Mishna og útskýringum þess , Tosefta. Þetta ritsafn var til þegar um 2oo e.kr.
Til frekari útskýringar á hinni munnlegu hlið lögmálsisn var ritað skýringarsafnið Talmud. Varð Talmud til bæði í Jerúsalem og Babylon og skýrir hina munnlegu hefð enn frekar og heimfærir hana upp á flesta þætti hins daglega lífs. Því má segja að með þessu hafi allt líf hins trúaða gyðings hafi verið sett í ákveðnar skorður lögmálsins.
Þannig urðu í raun til ný trúarbrögð þegar ísraelsríkinu gamla var eytt eftir uppreisn stjörnusonarins. Var það gyðingdómur er sótti kenningu sína í hina rituðu hefð hebresku Biblíunnar.
Palestínski Talmúðinn var prentaður á Feneyjum 1523-24 og allar seinni útgáfur hans fylgja þessari. Aftur á móti voru hlutar úr babýlonska Talmúðinum prentaðir í fyrsta skipti á Spáni um 1482 og síðan hafa komið út um 100 mismunandi útgáfur. Staðalútgáfan kallast Vilna, eftir borginni Vilnius í Litháen, þar sem hún var prentuð frá og með árinu 1886.
Mikilvægustu bækurnar sem mynda Talmúð heita Mishna, sem þýðir endurtekið nám, og Gemara, sem þýðir fullkomnun. Við þær er svo bætt ýmsum glósum og skýringum. Orðið Mishna vísar til lagafyrirmæla sem upphaflega voru varðveitt í munnlegri geymd og juku við og útfærðu lög og siðafyrirmæli Tórunnar. Oftast telst Tóra vera fyrstu fimm bækurnar í Gamla testamentinu (Fimmbókaritið), en stundum Gamla testamentið í heild. Samkvæmt gyðingdómi skapaði Guð Tóruna á undan heiminum svo hún inniheldur guðdómlega formúlu fyrir framtíð heimsins og svör við öllum spurningum. Meira að segja Guð sjálfur skoðar Tóruna áður en hann tekur ákvarðanir til þess að forðast þversagnir.
Mishna skiptist í sex bálka sem kallast sedarim. Þeir greinast svo í nokkurs konar pistla sem nefndir eru massekhtaotog skiptast í enn smærri kafla. Bálkarnir í Mishna fjalla um landbúnað; margvíslegar trúarathafnir og -hátíðir; samlíf hjóna; eignir, fjármál og dómgæslu; helgidóma og að síðustu hreinleika og hreinsunarathafnir, til dæmis varðandi mataræði. Eins og áður sagði voru lögin (Mishna) upphaflega ekki skrifuð, heldur gengu þau mann fram af manni meðal rabbína sem rannsökuðu þau í fræðasetrum Palestínu og Babýloníu. Árin 132-135 eftir Krist gerðu gyðingar í Ísrael uppreisn gegn Rómverjum og í kjölfarið endurreistu þeir hæstaréttinn eða æðstaráðið, sanhedrin, sem var í senn stjórnvald og menntastofnun. Nokkru eftir það var komið föstu skipulagi á Mishna undir stjórn Júda ha-Nasi (Júda prins eða Júda forseti, 135 til um það bil 220), sem þá var í forsvari fyrir sanhedrin. Svo virðist sem Mishna hafi þá fengið það form sem hún hefur enn í dag. Hins vegar er óvíst að hún hafi verið skrifuð niður fyrr en síðar svo geymd hennar var aðallega munnleg fram á miðaldir, og jafnvel lengur.
Orðið Gemaraer arameískt og er notað um lögskýringar við Mishna sem urðu til eftir að hún öðlaðist fast form. Upphaflega voru það þessar skýringar sem nefndar voru 'Talmúð', en þegar textinn var prentaður í Basel milli 1578 og 1581, ákváðu ritskoðendur kirkjunnar að þær skyldu kallast 'Gemara'. Síðan þá hefur Talmúð oftast vísað til verksins alls.
Þó Talmúð sé fyrst og fremst safn lagatexta og skýringa á þeim fjallar hann einnig um margvísleg önnur efni. Af þeim má nefna: landbúnað, stjörnuspeki, ráðningu drauma, siðfræði, þjóðhætti, sögu, galdra, stærðfræði, læknisfræði, málshætti og guðfræði. Hlutskipti mannsins, sigrar hans og ósigrar, skipa stóran sess í Talmúð. Til dæmis geymir hann reglur um ábyrgð fólks í fjölskyldu sinni og veröldinni almennt. Einnig fjallar hann um heilsufræði, mataræði og lyfjanotkun.
Textarnir í Talmúð eru nokkuð sérstakir að málfari og byggingu. Þeir byggjast nefnilega á skýrslum um samræður eða deilur ýmissa fræðimanna. Í sumum tilfellum eru þessir fræðimenn nafngreindir, en oft er það ekki gert og þá merkir það að útleggingin eða skoðunin njóti almennrar viðurkenningar. Stundum eru skýrslurnar um raunverulegar deilur en oft hafa skrifararnir upphugsað röksemdirnar og lagt þær í munn þeim sem gætu hafanotað þær. Þetta ýtir náttúrulega undir margvíslegar túlkanir. Textanum er skipað þannig á blaðsíðurnar að Mishna og Gemara eru í dálki í miðjunni en aðrar skýringar allt í kringuum þær. Í Talmúð er stuðst við tiltekna túlkunaraðferð sem kallast Midrashog var upphaflega beitt á Heilaga ritningu. Bæði er mikið vitnað í ritsöfn sem geyma þessa túlkun helgiritanna, og auk þess er aðferðin sjálf notuð í skýringum Gemara við Mishna. Það felst í Midrash að mótsagnir í texta eru útskýrðar með því að endurtúlka hann. Og ef vandamál komu upp eru þau leyst röklega út frá hliðstæðum eða með enn vandlegri textarýni.
Í gegn um tíðina hefur Talmúð oft verið gagnrýndur og honum hafnað sem tilbúningi rabbína. Á átjándu og nítjándu öld olli upplýsingarhreyfing gyðinga afhelgun í menningarlífi þeirra og breytti þar með viðhorfum margra til Talmúðs. Afleiðing þess er sú að margir gyðingar líta á Talmúð sem tímaskekkju frá miðöldum og hafna honum þess vegna. En eftir að gyðingar stofnuðu þjóðríki í Ísrael árið 1948 og menning þeirra gekk í endurnýjun lífdaganna, hefur Talmúð aftur öðlast mikilvægi, sérlega í Ísrael. Forskriftir hans hafa víða áhrif, aðallega á fjölskyldulíf, reglur um mataræði, samkunduhúsin og fyrirkomulag góðgerðasamtaka og ýmissar félagslegrar starfsemi. Ungir íhaldssamir gyðingar lesa líka Talmúð til að finna lausnir á deilum og vandamálum í samtímanum, til dæmis þeim sem tengjast fóstureyðingum eða ofbeldi í samfélaginu.
Tilvísun
Stefán Jónsson og Ulrika Andersson. Hvað er Talmúð? . Vísindavefurinn 11.7.2002. http://visindavefur.is/?id=2584. (Skoðað 15.4.2008).
Höfundar
Stefán Jónssonaðstoðarmaður ritstjóra á VísindavefnumUlrika Anderssonvísindablaðamaður
Halakhah
Halakhah er rit semí er að finna siðaboðskap gyðinga auk ýmissa hefða sem byggjast á boðorðunum. Boðorðin tíu sem opinberuðust Móse á Sínaí-fjalli, 613 boðorð sem voru unnin af rabbínum á annarri til sjöundu öld og ýmsar hefðir sem mynduðust á fyrstu öldum Ísraelsríkiser að finna í Halakhah. Í Halakhah má finna upplýsingar um klæðnað, hvað megi borða og hvernig hægt sé að hjálpa fátækum. Því er Halakhah ekki eingöngu trúarlegt gildi heldur líka hversdagslegt gildi og er því undirstaða lífshátta og siða gyðinga. Með því að hlýða orðum Halakhah sýna menn guði þakklæti sitt, öðlast skilning á einkennum gyðingdómsins og færa guðdóminn inn í hversdaglífið.
Mishnah og Talmúd
Mishnah inniheldur munnlega lögmálið. Eftir að seinna musteri gyðinga var eyðilagt árið 70 e. Kr., og gyðingar tvístruðust, var farið að leggja meiri áherslu á að skrásetja sögu og trúarlíf gyðingdómsins. Umræður rabbína um hvernig trúarlegt og veraldlegt líf gyðinga gæti samlagast breyttum aðstæðum leiddu til þess að til urðu lög og siðaboð sem Ísraelsmenn gátu farið eftir. Það var þó ekki fyrr en árið 200 e. Kr að munnlega lögmáliðvar skráð í rit sem fékk nafnið Mishnah. Í Mishnah er fjallað um bæði trúarlegar og veraldlegar hliðar lífsins. Mishnah leiddi svo til mikilla rökræðna milli rabbína sem tjáðu skoðanir sínar hvort heldur að þeir voru í meiri hluta eða minni hluta hópum gyðinga. Þessum rökræðum var síðan safnað saman í rit sem nefnist Talmúd.
Talmúd er safn, ritað af rabbínum, sem inniheldur trúarhefðir gyðinga. Talmúd er talið hafa verið skrifað einhverstaðar á bilinu frá annarri til fimmtu öld e. Kr. Sumir gyðingar vilja þó meina að þessi texti hafi einnig opinberast Móse en hafi borist á milli munnlega allt þar til hann hafi verið skrifaður niður. Þess vegna nefnist Talmúd stundum munnlega Tóra. Í Talmúd er textinn jafn heilagur og textinn í Biblíunni.
Siddur og Haggadah
Hvað varðar lífsmáta og trúarathafnir gyðinga þá eru tvö rit sem hafa mikla sérstöðu en það eru bænabækur sem nefnast Siddur og endursögn sem nefnist Haggadah.
Til eru margar gerðir af Siddur bæði til daglegs bænahalds og til að nota á Sabbatsdegi og trúarhátíðum. Siddur er í grunninn eins uppbyggð þó einhver munur sé á henni eftir hvaða stefnu gyðingar aðhyllast. Bænabókin um helgisiðaformið er þó allstaðar eins.
Haggadah segir frá brottför Ísraelsmanna frá Egyptalandi. Við málsverð gyðingafjölskyldunnar á páskum er frásögnin flutt og hún rifjuð upp kynslóð eftir kynslóð. Frásögnin er til þess að fræða börnin og á að halda athygli þeirra. Með þessu er verið að móta sjálfsmynd gyðinga.
Höfundar
nemendur.khi.is/gudthors/truarbragdavefurinn/gyding/gydingTruarhugmyndir/gydingTruHelgirit2.htm - 13k -Gyðingdómur eru næstelstu trúarbrögðin og elstu eingyðistrúarbrögðí heimi. Samkvæmt gyðingatrú má rekja upphaf gyðingdóms til þess þegar Abraham gerði sáttmála við guð, um 2000 f. Kr. Gyðingar tóku að breiðast út um allan heim þegar Babýloníumenn herleiddu Júdeu. Gyðingar skipast í þrjár meginfylkingar. Rétttrúnaðargyðingar vilja halda í alla gamla siði gyðingdómsins, umbótasinnar vilja laga gyðingdóm að nútímanum, og íhaldssamir gyðingar vilja bæði halda í gömlu siðina og laga gyðingdóm að nútímanum.
Gyðingar eru nú flestir í Bandaríkjunum en í Ísrael er mesta samfellda byggð Gyðinga. Flestir búa þeir innan borgarmúra Jerúsalem þar sem er helgasti staður Gyðinga: Grátmúrinn. Þangað koma Gyðingar frá öllum löndum heims í pílagrímsferðir til að biðja.
'Eg mæli eindregið með þessari biblíu, ég +á hana sjálfur hún er frábær
og Þessi er æðisleg með nýja testamentinu
ég elska hana og nota hana mikið

Trúmál og siðferði | Breytt 16.4.2008 kl. 01:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 9. apríl 2008
Heilög þrenning
Heilög þrenning, Þrenningin eða Þrenningarkenningin er ein mikilvægasta hugmyndin í hinni kristnu trú samkvæmt flestum kirkjudeildum og felur í sér Föðurinn, Soninn og heilagan anda. Kjarni þessarar kenningar er að Guð er samfélag föður og sonar og heilags anda í einum guðdómi. Kenningin óx fram sem tilraun til að samræma og útskýra frásögur Gamla og Nýja testamentanna um Guð og skapa samræmda mynd af opinberunum Hans.
Þrátt fyrir mikilvægi kenningarinnar fyrir allar helstur kirkjudeildirnar hefur hún valdið miklum deilum guðfræðinga og á þátt í klofningi kirkjudeilda sérlega á fyrstu öldum kristinnar kirkju.
Saga
Þrenningarhugtakið sem slíkt er ekki að finna í Biblíunni, hvorki í Gamla eða Nýja testamentinu. Það var kirkjufaðirinn Tertullianus (um 160225) frá Karþagó sem um ár 200 setti fram grundvallarsetningu þrenningarkenningarinnar: Guð er einn að eðli og þrjár persónur. Hugtakið Þrenningin var fyrst notað af Þeophílusi frá Antiokkíu um ár 180 [1] og varð afgerandi við framvöxt kaþólsku kirkjunnar og rétttrúnaðarkirkjunnar, til dæmis í deilunum við aríanista, nestoríana og það sem varð austrænu rétttrúnaðarkirkjurnar. Aríus hélt því fram að Það var sá tími er sonurinn var ekki:
- Þess vegna eru þrjár verur (hyopstaser), Faðirinn, Sonurinn og Heilagur andi. Og Guð, sem er upphaf allra hluta, er sá eini án upphafs, en Sonurinn, sem fæddist utan tímans af Föðurnum var ekki áður en hann var fæddur og fékk einungis líf gegnum Föðurinn einan. (haft eftir Aríusi í gagnriti Epiphaniuar frá Salamis .
Í Aþanasíusarjátningunni (sem samin var um ár 500) sem sköpuð var gegn Aríusarsinnum segir hins vegar:
- 10 Faðirinn er eilífur, sonurinn er eilífur, heilagur andi er eilífur 11 og samt sem áður eru ekki þrír eilífir, heldur einn eilífur 12 eins og þeir eru ekki þrír óskapaðir og ekki þrír ómælanlegir, heldur einn óskapaður og einn ómælanlegur.
og síðan:
- 21 Sonurinn er ekki gerður og ekki skapaður, heldur fæddur af föðurnum einum. [3]
Þrenningarkenningin skapaðist undir miklum áhrifum frá nýplatonisma ekki síst hugmynda þeirra um heim frummyndanna og hinn skynjanlega heim sem fullkomlega aðskildir.
Þessar deilur urðu aðalmálefnin kirkjuþingsins í Níkeu 325 og Níkeujátningin frá 381 er sett fram einkum til undirstrika mikilvægi þrenningarkenningarinnar.
Þrenningarkenningin í Biblíunni
Hvorki hugtakið Heilög þrenning né önnur augljós hugtök sem styðja það er að finna í Biblíunni en guðfræðingar hafa þó fundið fleiri staði sem má nota til að rökstyðja kenninguna.
Í Gamla testamentinu er einkum 1. Mósebók 18 þar sem Guð sýnir sig í formi þriggja manna fyrir Abraham tekin sem vitni um kenninguna. Í Nýja testamentinu er mikilvægasta stuðninginn að finna í Matteusarguðspjallinu 28:19 en einnig í 2. Korintubréf 13:13 .
Guðdómurinn er einn
Trúin á þrenningarkenninguna er mikilvæg í kaþólskri trú, rétttrúnaðarkirkjunni og flestum söfnuðum mótmælenda. En samtímis er kenningin um að það sé aðeins til einn guð grundvöllur kristinnar trúar. Þessi kenning tengir kristni hinum Abrahamísku trúarbrögðunum, Gyðingdómi og Íslam, eða eins og segir í Jesaja 44:6 enginn Guð er til nema ég. Þrenningarkenningin veldur því hins vegar að bæði Gyðingdómur og Íslam álýta kristna vera fjölgyðistrúar eða alla vega jaðra við það
Söfnuðir sem afneita þrenningarkenningunni
Ýmsar kirkjudeildir hafa afneitað þrenningarkenningunni eða dregið hana mjög í efa. Ástæðurnar fyrir því eru margvíslegar og má nefna að hún fylgi ekki eingyðiskenningu Gamla testamentistins og Gyðingdóms, að hún sé einungis tilbúningur kirkjufeðranna og ekki síst að framsetningin á þrenningarkenningunni byggist að miklu leyti á orðaforða sem ekki er að finna í Biblíunni.
Ýmsar kirkjudeildir mótmælenda afneita þrenningarkenningunni. Þekktust er kirkjudeild únitara sem leggja áherslu á einingu Guðs og andmæla guðdómi Jesú Krists og heilags anda og þar með heilagri þrenningu. Einnig má nefna vísindakirkjuna (Christian Science). Kirkjudeildirnar Kirkja Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu og Vottar Jehóva, sem báðar telja sig kristnar þó aðrar kirkjur ) telji svo ekki vera, afneita báðar þrenningarkenningunni þó af mismunandi ástæðum.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 23:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)